Posted by: magnushaf | 18 10 07

Óvænt traffík?

Datt inná gamla bloggið mitt (þetta) fyrr í dag og tók eftir því að 25 hefðu skoðað síðuna í dag. Hvað veldur því er á huldu en spurning hvort taki eigi upp þráðinn á ný þar sem blogg lesendur virðast vera þyrstir?

Posted by: magnushaf | 20 04 07

Why bother…

Þetta blogg er hér með farið í pásu um óákvæðinn tíma.

Menn (og konur) geta skemmt sér yfir þessum greinum á meðan:

Ertu skápahommi?

Freaky augl á einkamal.is

Kv,

M

Posted by: magnushaf | 03 04 07

Dylan í gærkvöldi

Bob Dylan – án vafa einn mesti snillingur tónlistarsögunnar og um það verður ekki deilt. Ég varð svo frægur í gærkvöldi að vera viðstaddur tónleika hans í Forum hér í Kaupmannahöfn en því miður kvaddi ég tónleikana frekar súr. Dylan var þarna samankominn með 5 manna bandi og það er að mínu mati það sem skemmdi tónleikana. Tónleikarnir sem slíkir voru góðir og ekkert hægt að setja útá spilamennskuna. Það var lagavalið og útsetningarnar sem gerðu útaf við tónleikana. Sérstaklega á þetta við um þá aðdáendur sem hrifnastir eru af hann fyrri verkum (1690-1970).

Í stað Dylans með gítarinn í hönd að taka alla helstu smellina var þarna á ferðinni mikið til b-hliða lög og öll lögin í einhverskonar blús útgáfu. Því miður verð ég að segja að ég varð fyrir vonbrigðum með hvernig tónleikarnir voru settir upp. Vonandi næ ég að hitta á Dylan aftur einhverntíma þar sem hann hefur annan hátt á.

Posted by: magnushaf | 27 03 07

Bongó!

tirsdag D13°   N2°

onsdag D14°   N5°

torsdag D12°   N5°

fredag D13°   N4°

lørdag D14°   N3°

Ætla ekki að skrifa neitt heldur bara njóta blíðunnar…

Posted by: magnushaf | 15 03 07

Ótrúlegt

Alveg finnst mér merkilegt hvernig íslendingar láta þegar það heyrist af íslendingum sem sitja í fangelsum erlendis. Þessi fangelsi eru oft talsvert meira “brutal” en þau sem þekkjast heima enda óskiljanlegt hversu gott menn virðast stundum hafa það í fanglelsum á Íslandi.

Nú er komið upp eitt mál þar sem íslendingur situr í fangelsi í Virginíu fylki vegna ansi alvarlegs brot að mínu mati. Ekki stendur á íslendingunum og það er nú kominn undirskriftalisti þar sem íslensk stjórnvöld eru hvott til að beita sér í málinu. Skoðum málið aðeins…

Á síðu undirskriftalistans stendur:

“Geir Þórisson er fæddur á Íslandi árið 1973. Árið 1984 flutti hann ásamt foreldrum sínum til Virginiu fylkis í Bandaríkjunum, Geir var þá aðeins 11 ára gamall, var hann þar í skóla og vinnu.
Árið 1998 var Geir að skemmta sér og áfengi var haft um hönd. Skemmtunin endaði ekki vel þar sem félagi Geirs, átti hugmynd af því að ræna ókunnugan mann á götu úti. Geir sló manninn ítrekað í höfuðið með hafnaboltakylfu og stálu þeir félagar síðan veskinu af fórnarlambinu. Þeir náðust daginn eftir heima hjá Geir þar sem þeir sváfu ölvunarsvefni.

Afhverju viljum við þennan mann hingað heim? Til þess að auðvelda refsinguna? Ég veit ekki með aðra en að mínu mati er það ansi alvarlegt þegar menn berja aðra ítrekað í höfuðið með hafnarboltakylfu enda getur það hæglega drepið viðkomandi. Ég fæ ekki séð að það skiptir nokkru máli hvort hann var drukkinn eða ekki. Brot er brot, hvort sem það er undir áhrifum vímuefna eða ekki. Auk þess hefur hann búið í USA síðan 1984 og brotið einnig framið þar og því engin ástæða fyrir því að hann taki dóminn út hér. Viðeigum nóg með þá aðila sem brjóta af sér hér.

Neðar á síðunni stendur: “Geir sá eftir þessu og bað fórnarlambið afsökunar í réttarsalnum. ” Nú, þá er þetta mun skárra. Hvaða máli skiptir hvort hann biðst afsökunar eða ekki? Átti að segja við hann skamm skamm og láta hann lofa að gera svona ekki aftur?

Auk þessa eru góðar og gildar ástæður fyrir því að bandaríkjamenn vilja ekki framselja hann. Þær eru:

1. Andstæða í sýslunni þar sem brotið var framið. 
2. Alvarleiki málsinns. (Skiljanlegt)
3. Foreldrar Geirs búsettir í Bandaríkjunum. (og hann einnig, mjög skiljanlegt) 
4. Of stuttur tími í Bandarísku fangelsi.
5. Engin trygging að hann klári dóminn á Íslandi. (hárrétt!) 
6. Hefur ekki greitt fórnarlambinu skaðabætur. (Ertu ekki að grínast? Hann hefur ekki einu sinni greitt bætur! Þ.a.l engin trygging fyrir því að hann geri það)

Ég segi, höldum honum þarna. Menn verða að vera ábyrgir fyrir gjörðum sínum, sama hvar það er á hnettinum. If you cant do the time – don´t do the crime!

Older Posts »

Categories

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.